24.01.2012 18:07Ótitlað
Skrifað af Karl Einar 24.01.2012 12:33ÓtitlaðHelmingur látinna 17 ára og yngriTólf létust í banaslysum í umferðinni í fyrra en helmingur þeirra voru ungmenni 17 ára og yngri og er það óvenju hátt hlutfall samanborið við undanfarin ár, samkvæmt Umferðarstofu.Þrjú af þeim sem létust voru 17 ára ökumenn bifreiða og einn jafnaldri þeirra var farþegi í bíl. 13 ára stúlka og 5 ára stúlkubarn létust þegar þær urðu fyrir bíl en fjórir af þeim sem létust í umferðinni í fyrra voru fótgangandi og er það einnig óvenju hátt hlutfall miðað við undanfarin ár. Skrifað af Karl Einar 23.01.2012 14:11Verðbreytingar.Gjaldskrárbreyting. Frá og með áramótum hækkar verð fyrir kennslustundina (45mín) úr 7500 kr í 8000 kr. Hækkunin er eins hófleg og hægt er þar sem gjaldskráin hefur verið sú sama síðan des 2009. Leiga á bifreið í próf verður 6500 kr Skrifað af Karl Einar 21.01.2012 17:09sms og aksturAð aka bifreið er full vinna. Að senda sms, mms og hvað þetta allt heitir á ekki við. Að vera á netinu á heldur ekki við. Einfaldlega látið símann vera. Neyta matar eða drykkjar á heldur ekki við. Að mála sig eða bera á sig varalit á heldur ekki við. Munið að hafa fulla athygli við aksturinn þannig komumst við heil heim. Myndband sem vert er að skoða sjáið sérstaklega viðbrögð barnanna. Viljum við valda svona kvöl. Skrifað af Karl Einar 19.01.2012 18:01Ölvunarakstur og hraðaksturÁbending Ölvunarakstur og hraðakstur Ölvunarakstur og hraðakstur eru meðal algengustu orsaka banaslysa í umferðinni. Ökumaðurinn sem fórst var bæði ölvaður og ók of hratt. Það verður seint brýnt nægjanlega fyrir ökumönnum hversu mikið hættuspil ölvunarakstur og hraðakstur er. Ef áfengis er neytt fram á nótt getur það tekið líkamann langt fram á næsta dag að losa sig við það úr blóðinu. Ekki er óhætt að aka bifreið fyrr en allt áfengi er farið úr blóðinu og ökumenn hafa hvílst vel. Skrifað af Karl Einar 10.01.2012 12:23vetrarveður.Nú er allra veðra von og oft ekki hundi út sigandi. Endilega farið varlega í þessari færð því slysin gera ekki boð á undan sér. Ekki fara út bara til að fara út. Það er nefnilega oft sem við förum út nánast að óþörfu. Höldum okkur bara heima við ef við getum. Það hefur nefnilega aldrei orðið það vont veður að því ljúki ekki og það er best að bíða það bara af sér. Skrifað af Karl Einar 03.01.2012 11:52Hækkun prófagjalda.Nú um áramótin tók gildi ný gjaldskrá fyrir umferðaröryggisgjald US. Breytingin hefur þegar tekið gildi og verður innheimt samkvæmt henni frá og með deginum í dag 3-1-2012 Fyrir hvert skriflegt próf í öllum réttindaflokkum 800 kr. (var 500) Fyrir hvert verklegt próf í öllum réttindaflokkum 1600 kr. (var 1000)
PRÓF, SKRIFLEG Fræðileg próf m/gjöldum: 2.900 kr.
Skrifað af Karl Einar 29.12.2011 08:27ÓtitlaðInnlent | mbl | 29.12.2011 | 8:10
Hreinsið snjóinn af bílunum
Huga þarf vel að börnunum í snjónum og gæta þess að þau séu ekki að leika sér við umferðargötur, að sögn Umferðarstofu. mbl.is/Golli Mikilvægt að hreinsa vel snjó af þökum bíla Ökumenn eru hvattir til að fara ekki út í umferðina nema ökutækin sé vel búin fyrir vetrarakstur, að sögn Umferðarstofu. "Það er mikilvægt að hreinsa snjó vel af bílnum en það dugar ekki aðeins að hreinsa af rúðum, speglum og ljósum heldur er einnig mikilvægt að snjór sé hreinsaður af þaki bílsins svo hann renni ekki skyndilega fram á framrúðuna og byrgi ökumanna sýn. Slíkt getur skapað mikla hættu. Best er að nota sóp til þessa verks. Varúð vegna vetrarleikja barna Víða á landinu hefur snjóað töluvert og því má gera ráð fyrir að vetrarleikir meðal barna séu vinsælir þessa dagana. Samkvæmt lögreglu er nokkuð um það að börn príli upp á ruðninga og renni sér niður á götur. Slíkt er mjög varasamt og mikilvægt að foreldrar/forráðamenn brýni fyrir börnum sínum að gæta varúðar í leikjum sínum og að leiksvæðin séu valin fjarri umferð." Skrifað af Karl Einar 23.12.2011 10:17jólakveðjaGleðileg jól
Kæru nemendur og forráðamenn við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Jólakveðjur Kalli og Anna Pála Skrifað af Karl Einar 10.11.2011 17:29ÖkunámGet bætt við mig nemum nokkur pláss laus. Skrifað af Karl Einar 09.11.2011 10:04Huga þarf að mörgu.Svona á ekki að gefa start Rafgeymarnir vitlaust tengdir og allt fór í bál og brand![]() Það er ekki sama hvernig á að gefa start. Það borgar sig að vera með allt á hreinu áður en hafist er handa. Sjá frétt í DV Skrifað af Karl Einar 07.11.2011 10:17Þörf ábending.Mjög þörf ábending endilega lesið yfir þessa grein í Víkurfréttum Fréttir | 6. nóvember 2011 | 15:11:56Ökumenn virða ekki stöðvunarskyldu á Fitjum
Lesandi hafði samband og lýsti áhyggjum sínum af því að umferðarmenningu á Reykjanesbraut við Fitjar. Lesandinn sem er atvinnubílstjóri sem fer a.m.k. tvær ferðir á dag um Reykjanesbrautina og segir í bréfi til Víkurfrétta að hann hafi margoft lent í því að ekið væri í veg fyrir hann þar sem Stekkur tengist Reykjanesbrautinni á Fitjum. Hann hafi því tekið sig til og vaktað gatnamótin um stund og fylgst með umferðinni. Það kom honum á óvart hversu margir virtu ekki stöðvunarskyldu á gatnamótunum. Öll fréttin. Skrifað af Karl Einar
Flettingar í dag: 64 Gestir í dag: 23 Flettingar í gær: 112 Gestir í gær: 39 Samtals flettingar: 185491 Samtals gestir: 52504 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 12:47:10 |
Vafraðu umArney ökukennsla Nafn: Karl Einar ÓskarssonFarsími: 847-2514Tölvupóstfang: arney@arney.isHeimilisfang: Heiðarhorn 3 KeflavíkHeimasími: 423-7873Um: Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2007Tenglar
Eldra efni |