22.11.2012 22:52

Ótitlað

Ungir ökumenn á réttri leið

Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur fækkað. stækka

Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur fækkað. AFP


linkur á frétt

22.11.2012 22:50

Ótitlað

Drukkin amma með barnabarn í bílnum

stækka

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Þekkt eru dæmi um foreldra sem aka drukknir eða undir áhrifum fíkniefna með börn sín í bílnum. Lætur nærri að slík mál hafi komið á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstum mánaðarlega á síðasta ári.

Fáheyrt er hins vegar að afar og ömmur gerist sek um slíkt dómgreindarleysi, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Í vikunni var kona stöðvuð við umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu, en sú reyndist vera drukkin við stýrið.

Konan var ekki einsömul á ferð því með í för var ólögráða barnabarn hennar. Amman var handtekin og flutt á lögreglustöð, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu barnsins og barnaverndaryfirvöld jafnframt upplýst um málið.

09.11.2012 23:37

ökuskóli

Námskrá Ökuskóla Suðurnesja fyrir haustið 2012


03.09.2012 21:33

Ótitlað

Veittist að prófdómara í ökuprófi

Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja segir pirring í umferðinni út í þá sem ...stækka. Morgunblaðið/Ómar

Í síðustu viku var prófdómari í ökuprófi eltur af karlmanni sem var ósáttur við aksturslag hans og þótti sem stöðvun prófbifreiðarinnar við stöðvunarskyldu hefði tafið för sína allverulega. Maðurinn veittist að prófdómaranum með orðum og sneri að því búnu upp á hönd hans.

"Á undanförnum misserum höfum við orðið meira og meira vör við að mikinn pirring gagnvart þeim sem aka á löglegum hraða og fara eftir umferðarreglum," segir Svanberg Sigurgeirsson, ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja.

"Það hefur verið að síga á ógæfuhliðina að þessu leyti jafnt og þétt. Það er til dæmis algengt að flautað sé þegar ökunemar stoppa við stöðvunarskyldu eða keyra á löglegum hraða. Allt er reynt til að komast fram úr á allan mögulegan og ómögulegan hátt og stundum liggur við stórhættu vegna þess," segir Svanberg.

"En svo keyrði um þverbak í síðustu viku þegar ökumaður bíls elti prófbíl um talsverðan veg fyrir það að hann nam staðar á stöðvunarskyldu, sem hinum fannst vera óþarfa töf. Þegar prófbíllinn var kominn á bílaplan Frumherja vatt ökumaðurinn sér út úr bílnum og veittist að prófdómaranum og spurði hvern andskotann hann væri að þvælast fyrir í umferðinni. Dómarinn útskýrði fyrir honum að hann hefði verið að fara eftir umferðarreglum og rétti fram höndina til að skýra mál sitt. Þá tók maðurinn í höndina á honum, sneri upp á hana, hljóp síðan inn í bíl og rauk á brott."

Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja.

Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja. mbl.is

Að sögn Svanbergs voru bæði prófdómarinn og ökuneminn svo hissa á þessu athæfi að þeir stóðu sem steini lostnir og varð svo mikið um að þeim láðist að taka niður bílnúmerið. Því hefur atvikið ekki verið kært til lögreglu. Hann segir að prófdómarinn hafi ekki slasast alvarlega, en verið verulega brugðið.

Æpa blótsyrði og fara þétt upp að bílum

Svanberg segir að með slíkri óþolinmæði í umferðinni sé síður en svo verið að senda ungum ökumönnum rétt skilaboð. "Það er orðinn stór hópur í umferðinni, bæði karlar og konur, sem sýna óþolinmæði sína og pirring með þessum hætti. Við erum með stóra spegla á prófbílunum og við sjáum stundum að fólk er komið þétt upp við bílinn og maður sér það æpa blótsyrði."

En hver gæti verið skýringin á þessu? "Ég held að þetta fylgi þjóðarsálinni og því sem fólk er að ganga í gegnum. Margir eiga erfitt, það brýst út í pirringi sem birtist víða, í netheimum, í slæmri umgengni. Þetta kemur fram alls staðar og umferðin er þar ekki undanskilin."

"Við viljum vekja athygli á þessu og vildum gjarnan að reyndari ökumenn væru nýliðunum betri fyrirmynd," segir Svanberg.

03.09.2012 21:13

Bil milli bíla.

Segir allt sem segja þarf.....

VÍS auglýsing...

13.08.2012 12:05

Ótitlað

30.06.2012 19:43

íslenskur veruleiki

Þetta er íslenskur veruleiki og algerlega óásættanleg hegðun....




myndir venni bergs

mynd Hannes Sigurgeirsson.

06.06.2012 23:12

Skrítið

Furðuleg forgangsröðun.



Kona ein var stoppuð af umferðarlögreglunni í Colorado í Bandaríkjum. Furðu vakti að bensín brúsi var beltaður í barnabílstólinn en barnið laust. Algerlega óásættanlegt....

Frétti öll.


25.05.2012 17:42

Umferðaróhapp

Alveg ótrúlegar aðstæður í þessu umferðarslysi. Barnabílstóllinn bjargaði ungabarninu



Linkur á frétt hér.

22.05.2012 21:32

Ótitlað

Eins gott að passa sig í Hafnarfirði....


 Mynd: Reynir Kristjánsson

22.05.2012 19:01

Ótitlað

Hvar er virðingin við barnið og umhverfið mjög sláandi athægi.....




Fréttir | 22. maí 2012 | 16:46:30

Móðirin í símanum á meðan barnið hékk út um gluggann

Lögreglan á Suðurnesjum veitti í gær athygli bifreið sem ekið var um götur í umdæminu. Stúlkubarn, sem augljóslega var ekki í bílbelti, hékk út um afturglugga bílsins, en móðirin, sem ók honum var að tala í farsíma og veitti barninu ekki athygli. Lögreglan gaf henni merki um að stöðva bifreiðina, en hún tók ekki eftir því sökum anna í símanum.

Þegar móðirin varð lögreglu loks vör átti hún í erfiðleikum með að stöðva bifreiðina þar sem síminn virtist enn trufla hana. Það hafðist á endanum og gerði lögregla þá konunni grein fyrir alvarleika þessa athæfis og tjáði henni að lögregluskýrsla yrði gerð um málið.

Mynd úr safni.

21.05.2012 21:57

Ótitlað

Þegar ekið er framúr bifreið skal hafa það í huga þegar ekið er fram fyrir bifreiðina skal hafa nægjanlegt bil á milli. Ekki aka í veg fyrir bifreiðina sem ekið er framúr fyrr en þið sjáið hana í hliðarspegli en þó helst í baksýnisspegli. Það er allt of algengt að fólk sneiði rétt hjá vinstra framhorni bifreiðarinnar sem framúr var ekið. MUNIÐ AÐ HAFA ALLTAF NÆGJANLEGT BIL Á MILLI BIFREIÐA.. 3 SEK

14.05.2012 10:40

Ökuskóli Suðurnesja

Næstu námskeið verða eftirfarandi.

Ö-1

Mánudaginn                21.  maí.   kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Þriðjudaginn                22.  maí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Fimmtudaginn             24.  maí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

 

Ö-2

Mánudaginn                   4.  júní.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

 

 

 

 

Þriðjudaginn                   5.  júní.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Fimmtudaginn                7.  júní.   kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

Ö-1

Mánudaginn                 18.  júní.   kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Þriðjudaginn                 19.  júní.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Fimmtudaginn              21.  júní.  kl.  19:00 til kl. 22:00

 

 

 

Ö-2

 Mánudaginn                 2.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

Þriðjudaginn                  3.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Fimmtudaginn               5.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

 

Ö-1

Mánudaginn                 16.  júlí.   kl. 19:00, til kl. 22:00

 

Þriðjudaginn                 17.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

Fimmtudaginn              19.  júlí.   kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

Ö-2

Mánudaginn                30.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

 

Þriðjudaginn                31.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

ATH !

Miðvikudaginn             1.  ágúst.  kl. 19:00, til kl. 22:00

 

 

02.05.2012 07:29

Ótitlað



VF Fréttir | 2. maí 2012 | 01:24:55
Tekinn á 160 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni - sektin 140 þúsund

Lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu í dag ökumann sem ók bifreið sinni á 163 km/klst hraða á Reykjanesbraut en þar er hámarkshraði 90 km/klst. Samkvæmt reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum er sektarfjárhæðin við broti ökumannsins 140.000 krónur.

01.05.2012 18:58

Ótitlað

Er þetta fyrirsögnin á ferðamannabæklingum sem við íslendingar viljum sjá.

"Ísland - landið þar sem þú upplifir spennuna - í ám, á eldfjöllum - og vissulega í umferðinni!!"


Dani skammar Íslendinga - gefið stefnuljós (visir.is)

Flettingar í dag: 410
Gestir í dag: 86
Flettingar í gær: 2178
Gestir í gær: 193
Samtals flettingar: 169238
Samtals gestir: 26116
Tölur uppfærðar: 29.4.2024 17:36:45

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar