Framundan eru nokkrir dagar þar sem snjór, frost, vindur og þýða skiptast á um völdin, einu nafni nefnist þetta umhleypingar. Þegar svona er ástatt þarf að fara sérstaklega varlega um stræti og torg. Upplagt er að sprauta dekkjahreinsir á dekkin til að þau nái betra gripi.
Eins og þetta myndband sýnir þá gerir maður ekkert þegar þessar aðstæður taka af okkur völdin.
Ökum alltaf af gætni og varúð þó sérstaklega við þessar aðstæður.