24.08.2010 11:39

Vermdarbúnaður.

Munum eftir að spenna beltin þau bjarga svo sannarlega.

IX. Um notkun öryggis- og verndarbúnaðar.

[ÖRYGGISBELTI OG ANNAR ÖRYGGIS- OG VERNDARBÚNAÐUR Í ÖKUTÆKI.]147

71. gr.

[Hver sá sem situr í sæti bifreiðar sem búið er öryggisbelti skal nota beltið þegar bifreiðin er á

ferð.

Ökumaður skal sjá um að í stað öryggisbeltis eða ásamt öryggisbelti noti barn viðurkenndan

barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum lægri en 150 sm

á hæð. Ef slíkur búnaður er ekki í bifreið skal nota öryggisbelti fyrir barnið.

Barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er

uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.

Barn yngra en þriggja ára má ekki vera farþegi í fólks-, sendi- eða vörubifreið nema hún sé

með viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði ætluðum börnum, sbr. 2. mgr.

Eigi er skylt að nota öryggis- eða verndarbúnað þegar ekið er aftur á bak eða við akstur á

bifreiðastæði, við bensínstöð, viðgerðarverkstæði eða svipaðar aðstæður.

Ökumaður skal sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað skv. 1.-4. gr.

[Ráðherra setur frekari reglur um gerð og notkun viðurkennds öryggis- og verndarbúnaðar

fyrir ökumann og farþega ökutækis þar sem m.a. skal kveðið á um skyldu til að tilkynna farþegum um

skyldubundna notkun öryggisbelta. Ráðherra setur jafnframt reglur um undanþágu frá skyldu til að nota

slíkan búnað, m.a. við sérstakan akstur.]148]149

Flettingar í dag: 267
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 242
Gestir í gær: 58
Samtals flettingar: 166206
Samtals gestir: 25670
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 13:56:52

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar