30.03.2010 11:52

Umferðin

35% fækkun slysa á Suðurnesjum.

Ánægjulegar tölur byrtust í frétt á
morgunblaðsvefnum um fækkun slysa. Ég held að það megi rekja til bættrar ökukennslu og hertra viðurlaga. En betur má ef duga skal.

28.03.2010 16:17

Ökuskóli 3

Ökunemar sem eru fæddir 1994, eða þeir sem hefja ökunám eftir 01.01.2010 eru skyldugir til að fara í Ö3 (Ökugerði/skrikvagn/forvarnarhús) og því er ekki gert ráð fyrir neinni sprengju í aðsókn svona fyrst um sinn.

Ökuskóli 3 er staðsett í Reykjavík svona til að byrja með, nánar til tekið á Kirkjusandi við Borgartún og stefnan að hefja fulla kennslu með vorinu. Ökukennari mun sjá um að skrá nemann inni á www.okuskoli3.is Eftir það getur neminn farið sjálfur inn á síðuna til að ganga frá greiðslu og breitt tíma en gjaldið er 33.400 kr.

Breytingar á ökuskólum verður í kjölfar þess að Ö-3 er tekinn upp.

Ö1 verður áfram 12 kennslustundir.

Ö2 verður styttur í 10 kennslustundir.

Ö3 verður 5 tímar, 2 verklega tíma og 2 tímar sem verða blanda af sýni- og fræðilegri kennslu og svo einn tími í fræðilegu námi.

Ö-3 er ekki ætlaður til að kenna nemanum að aka við erfiðar aðstæður heldur hvernig forðast á að lenda í erfiðum aðstæðum. Hugsunin er semsagt sú að leifa nemanum að finna hvernig bifreið bregst við minnkandi veggripi við hættulausar aðstæður.
Símat af hálfu kennara er notað til að finna út virkni og hæfni nemans. Hægt er að falla á þessum hluta ökunámsins! Ef nemi sýnir ekki virkni og áhuga þá má hann búast við falli sem þýðir annað námskeið og borga þarf sömu upphæð aftur. Til að mega hefja Ö-3 þarf ökuneminn að hafa lokið Ö-1 og Ö-2 og 14 verklegum ökutímum hjá ökukennara.

Nokkrir þættir varðandi Ö3 eru enn ófrágengnir en strax og námsskráin verður staðfest verður sett af stað kynningarherferð.

Ekkert mælir því í mót að allir sem hafa nú þegar ökuréttindi fari í þetta nám og mæli ég eindregið með því.

Svona virkar skrikvagn!

22.03.2010 21:30

Ólöglega lagt.

Alveg er það með eindæmum hvað íslendingar eru sporlatt fólk. Ók framhjá einni líkamsræktarstöðinni um daginn þar sem fólk borgar fúlgu fjár fyrir að hlaupa á einhverjum brettum. Fyrir framan þessa stöð taldi ég eina 15 bíla sem ekki var lagt löglega þó svo að bílastæðin væru næg en bara aðeins lengra frá þeim stað sem þessum bifreiðum var lagt. Legg ég til að þessir einstaklingar lýti á þessa metra sem bætast við með því að leggja löglega sem upphitun fyrir brettin góðu.




LEGGJUM LÖGLEGA ÞAÐ ER OKKUR ÖLLUM TIL HAGSBÓTA!!!

28.02.2010 11:44

Stæði fyrir fatlaða.



Bifreiðastæði fyrir fatlaða
Merki þetta er notað til að sýna bifreiðastæði sem eingöngu er ætlað fötluðum. Einnig er heimilt að nota merki D01.11 með undirmerki J11.11 .

Var að lesa áhugavert blogg hjá Ómari Ragnarssyni endilega skoðið það.

REGLUGERÐ um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða, nr. 369/2000  sbr. rg. 592/2002, gildist. 23.7.2002

1. gr.

Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða veitir, í sambandi við flutning á þeim sem fengið hefur slíkt kort útgefið, heimild til að leggja ökutæki hvar sem er á landinu í bifreiðastæði sem ætlað er fyrir fatlaða og auðkennt er með þar til gerðu umferðarmerki.

14.02.2010 10:59

Unglingaakstur

Víkuréttir | 14. febrúar 2010

Þrettán ára pjakkur ók greitt og braut umferðarreglur

Mbl.is / 10.2.2010

15 ára ökumaður flúði undan lögreglu.


Mbl.is / 28.7.2009

15 ára keyrir ölvaður.

Spurning til okkar foreldra og forráðamanna.

Fjöldinn allur af atvikum sem fyrr er lýst henda ár hvert. Er ekki kominn tími til að við sem teljum okkur komin til vits og ára förum nú að skoða hvar við geymum lyklana af bifreiðum okkar. Það er algerlega óásættanlegt að tilfelli sem þessi geti gerst. Það að krakkar sem ekki hafi hlotið til þess þjálfun hjá ökukennara aki um götur og þjóðvegi þessa lands hvort sem þau eru einsömul eða undir eftirliti foreldra eða forráðamanna.

Leifum börnunum ekki að aka fyrr en þau hafa til þess fullt leyfi.



08.02.2010 22:21

myndband

Sá á youtube frábært myndband frá Slóðavinum um öryggisbúnað hjólamanns endilega skoðið það.
Sjá nánar hér
Slóðavinir

03.02.2010 21:18

Kennslumyndband

Við félagarnir Hallgrimur Gunnarsson 899 9649
og Karl Einar Óskarsson ökukennarar höfum ákveðið að setja lokaverkefnið okkar á netið svo það megi stuðla að auknu umferðaröryggi meðal hjólafólks. Myndbandið er lokaverkefni okkar félaga í ökukennaranámi við Háskóla Íslands. Það er von okkar að þið njótið og lærið. Myndbandi má fá í fullum gæðum gegn vægu gjaldi með því að hafa samband við fyrrnefnda ökukennara.
Myndbandið má finna undir síðuheitinu myndbönd.
(skoða mynband hér)

29.01.2010 19:02

Slæmir vegir.



Ósléttur vegur - A20.11
Merki þetta má nota áður en komið er að vegarkafla þar sem miklar ójöfnur eru á yfirborði akbrautar.

Var að skoða myndir á netinu og sá þar marga slæma og varhugaverða vegi.

 
Þetta er íslenskur vegur en þó mjög slæmur.


Þetta er þjóðbraut í Rússlandi.
http://www.ssqq.com/ARCHIVE/vinlin27c.htm

Boðskapurinn er sá farið ekki inn á svona vegi því það er ávísun á leiðindi og aftur leiðindi fyrir vegfarandann og veginn sjálfann.

21.01.2010 11:43

Slæmt veður.



Merki þetta má nota til að vara við stað þar sem miklir sviptivindar eru tíðir.

Nú er spáð vonsku veðri víða á landinu og þá eru akstursskilyrði oftast slæm. Þá er vert að hafa í huga hvort ekki sé best að fresta för eða skipuleggja þannig að tíminn sé nægur. Aftanívagnar og annar tengibúnaður er varasamur við þessar aðstæður. Endilega farið varlega eða farið ekki neitt uns veður lægir.

Oft er betra heima setið en af stað farið.

16.01.2010 07:41

Framúrakstur bannaður!


Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að
 
aka fram úr öðrum vélknúnum ökutækjum en tvíhjóla.

Það má taka fram úr reiðhjóli og mótorhjóli. Skynsemin segir að það sé gáfulegt að hafa þetta svona þar sem að reiðhjól er í skilningi umferðarlaganna ökutæki. Og færa má rök fyrir því að ekki sé sniðugt að negla niður á 90 km götu til að fara ekki fram úr reiðhjólinu.

08.01.2010 14:42

Skinsemin ræður.

Mikið virði ég þennan gamla mann sem skilaði ökuskírteininu sínu um daginn. Fréttina má lesa hér.Skilaði ökuskírtein

08.01.2010 07:17

Rafgeymar

Að gefa start.
Nú þegar frostið bítur á vetrarmánuðum þarf oft að gefa straum milli bifreiða. Það eitt getur verið varasamt og jafnvel hættulegt. Á vef FIB er góð lýsing á hvernig rétt sé að gefa straum svo öruggt sé.
http://fib.is/?FID=2375

04.01.2010 22:06

Ökuskírteini

Fékk lánað þetta skemmtilega ökuskírteini nr 5 útgefið í Hafnarfirði 7 desember 1917.





04.01.2010 07:34

Stefnuljós

Stefnuljós eru notuð til að gefa öðrum vegfarendum til kynna um fyrirhugaða stefnubreytingu. Notkun stefnuljósa er kjörin leið til að auðvelda og greiða úr umferð.


Leið aðalbrautar á vegamótum

Hér segir skynsemin okkur að gefa stefnuljós hvort sem maður fer til hægri eða vinstri þó svo að um aðalbraut sé að ræða því það greiðir umferð hjá þeim er inn á veg ætla að aka.

Munið að stefnuljós eru ekki aukabúnaður á bílum.

Notum stefnuljósin!!!!

22.12.2009 21:57

Jólakveðja



Kæru ættingjar, vinir og aðrir landsmenn við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Það er von okkar að nýtt ár gefi okkur slysalaust umferðarár.

Karl Einar, Anna Pálína, Sveinbjörg Anna, Þórhallur og Árni Vigfús.

Flettingar í dag: 335
Gestir í dag: 71
Flettingar í gær: 2178
Gestir í gær: 193
Samtals flettingar: 169163
Samtals gestir: 26101
Tölur uppfærðar: 29.4.2024 14:06:41

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar