28.03.2010 16:17

Ökuskóli 3

Ökunemar sem eru fæddir 1994, eða þeir sem hefja ökunám eftir 01.01.2010 eru skyldugir til að fara í Ö3 (Ökugerði/skrikvagn/forvarnarhús) og því er ekki gert ráð fyrir neinni sprengju í aðsókn svona fyrst um sinn.

Ökuskóli 3 er staðsett í Reykjavík svona til að byrja með, nánar til tekið á Kirkjusandi við Borgartún og stefnan að hefja fulla kennslu með vorinu. Ökukennari mun sjá um að skrá nemann inni á www.okuskoli3.is Eftir það getur neminn farið sjálfur inn á síðuna til að ganga frá greiðslu og breitt tíma en gjaldið er 33.400 kr.

Breytingar á ökuskólum verður í kjölfar þess að Ö-3 er tekinn upp.

Ö1 verður áfram 12 kennslustundir.

Ö2 verður styttur í 10 kennslustundir.

Ö3 verður 5 tímar, 2 verklega tíma og 2 tímar sem verða blanda af sýni- og fræðilegri kennslu og svo einn tími í fræðilegu námi.

Ö-3 er ekki ætlaður til að kenna nemanum að aka við erfiðar aðstæður heldur hvernig forðast á að lenda í erfiðum aðstæðum. Hugsunin er semsagt sú að leifa nemanum að finna hvernig bifreið bregst við minnkandi veggripi við hættulausar aðstæður.
Símat af hálfu kennara er notað til að finna út virkni og hæfni nemans. Hægt er að falla á þessum hluta ökunámsins! Ef nemi sýnir ekki virkni og áhuga þá má hann búast við falli sem þýðir annað námskeið og borga þarf sömu upphæð aftur. Til að mega hefja Ö-3 þarf ökuneminn að hafa lokið Ö-1 og Ö-2 og 14 verklegum ökutímum hjá ökukennara.

Nokkrir þættir varðandi Ö3 eru enn ófrágengnir en strax og námsskráin verður staðfest verður sett af stað kynningarherferð.

Ekkert mælir því í mót að allir sem hafa nú þegar ökuréttindi fari í þetta nám og mæli ég eindregið með því.

Svona virkar skrikvagn!

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 54
Samtals flettingar: 173539
Samtals gestir: 27236
Tölur uppfærðar: 16.5.2024 09:23:12

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar