Blogghistorik: 2013 N/A Blog|Month_1

21.01.2013 18:51

Ökuskírteini

 21. janúar 2013

 

 Breytingar á reglum er lúta að ökuskírteinum

tóku gildi 19. janúar s.l., sbr. reglugerð nr. 27/2013 um breytingu á reglugerð um ökuskírteini

Gildistími:

Ökuskírteini sem áður voru gefin út til sjötugs verða nú gefin út til 15 ára í senn, þó aldrei lengur en til 70 ára aldurs. Þetta á við um ökuréttindi á fólksbifreið, létt bifhjól, bifhjól og dráttarvél (flokkar B, BE, AM, A1, A2, A og T).Gildistími allra annarra ökuréttindaflokka s.s. stór ökutæki og leigubíla (C1-, C-, D1-, D-, C1E-, CE-, D1E- og DE-flokk) verða áfram 5 ár eins og verið hefur.

Skírteini sem voru í gildi fyrir 19. janúar mun þurfa að endurnýja fyrir 2033, þó svo að gildistími þeirra sé lengri.

Bifhjól:

Nýr flokkur bifhjóla bætist við og aldursskilyrði til að aka stórum bifhjólum breytast:

1. Nýr réttindaflokkur bifhjóla bætist við, A2-flokkur, sem er bifhjól upp í 35kW.

2. Aldursskilyrði fyrir

o A1-flokk breytast ekki, verða áfram 17 ár en aldursskilyrði fyrir

o A2-flokk verður 19 ár.

o A-flokk. Til að öðlast ökuréttindi á aflmeiri bifhjól en A2-flokkur felur í sér þarf annaðhvort

§ að hafa tveggja ára reynslu á bifhjól í A2-flokki og því er það í fyrsta lagi 21 árs eða

§ að vera orðinn 24 ára.

 

Reynsla á bifhjól í AM- og A1-flokki telst ekki með í þessari tveggja ára reynslu.

Hér má sjá yfirlit yfir A réttindaflokka, afl hjóla, aldursmörk og önnur skilyrði til að öðlast réttindi. Neðst í hverjum flokki eru talin upp þau önnur réttindi sem fylgja: A

24 ára

21 árs

ef tvö ár meðA2

Öll bifhjól

AM

A1

A2

Þríhjól yfir 15 kW

A2

19 ára

35 kW

ekki yfir 0,2 kW/kg

ekki breytt úr meira en tvölföldu afli

AM

A1

A1

17 ára

11 kW - 125cc

ekki yfir 0,1 kW/kg

AM

þríhjól - 15 kW

AM

15 ára

50cc - 45 km

þríhjól - 45 km

13.01.2013 16:37

Reiðhjól

Munum að reiðhjól er ökutæki og hefur sama rétt og aðrir í umferðinni.
Endilega horfið á þetta myndband þá sjáið þið hvernig ekki á að haga sér gagnvart hjólreiðarfólki.
Virðum hvort annað í umferðinni burt séð frá því hvort við séum gangandi, hjólandi eða akandi.


Gefið hjólreiðafólki pláss í umferðinni

12.01.2013 12:37

Ótitlað

Þessi frétt er ekki óalgeng.

Eina ráðið til að forðast svona óhöpp er að vera á vel búnum bíl og fara rólega.

Þrjár bílveltur á Reykjanesbraut

Reykjanesbraut. stækka

Reykjanesbraut. mbl.is/Rax

Enginn slasaðist alvarlega í þremur bílveltum á Reykjanesbraut á fjörutíu mínútum í morgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins varar ökumenn við fljúgandi hálku sem er á veginum.

Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að fyrst hafi verið tilkynnt um bíl utan vegar í Straumsvík. Þrír voru í bílnum en meiðsli þeirra voru aðeins minniháttar.

Sjúkraflutningamenn voru varla komnir í hús þegar næsta tilkynning barst en hún var á sama stað. Einnig voru þrír í þeirri bifreið en enginn slasaðist.

Að lokum barst þriðja tilkynningin um bílveltu en þá var einn í bílnum og komst sjálfur út úr honum.

  • 1
Antal sidvisningar idag: 410
Antal unika besökare idag: 86
Antal sidvisningar igår: 2178
Antal unika besökare igår: 193
Totalt antal sidvisningar: 169238
Antal unika besökare totalt: 26116
Uppdaterat antal: 29.4.2024 17:36:45

Arney ökukennsla

Namn:

Karl Einar Óskarsson

Mobilnummer:

847-2514

Postadress:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Telefonnummer hem:

423-7873

Om:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Länkar