Blogghistorik: 2012 N/A Blog|Month_1127.11.2012 17:07Ótitlað
Mynd úr safni. Fréttir | 27. nóvember 2012 12:45
Hrina umferðaróhappa í hálkunniMörg umferðaróhöpp hafa orðið á Suðurnesjum á undanförnum dögum, sem flest hafa orðið vegna hálku. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Grindavíkurvegi með þeim afleiðingum að hún hafnaði skilti utan vegar. Önnur bifreið hafnaði á kantsteini af sömu sökum og urðu skemmdir á hjólabúnaði hennar. Á Reykjanesbraut missti ökumaður stjórn á bifreið sinni vegna hálku og hafnaði bifreiðin utan vegar eftir að hafa rekist utan í aðra bifreið. Fjórðu bifreiðinni var ekið á ljósastaur á Grænásvegi. Auk þessa varð minni háttar árekstur í Njarðvík í gær og tilkynnt var til lögreglu um skemmdir á bifreið eftir að ekið hafði verið utan í hana. Sá sem þeim olli lét sig hverfa af vettvangi. N/A Blog|WrittenBy Karl Einar 24.11.2012 15:11ÓtitlaðNú er úti eðal aðstæður fyrir hálku! N/A Blog|WrittenBy Karl Einar 23.11.2012 15:24ÓtitlaðInnlent | mbl | 23.11.2012 | 15:10
Ungir ökumenn undir áhrifum fíkniefnaLögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn um tvítugt vegna gruns að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Annar ökumannanna, kona sem handtekin var í gær, reyndist vera með tóbaksblandað kannabis í bílnum. Við húsleit heima hjá henni fannst meira af tóbaksblönduðu kannabisefni. Hinn ökumaðurinn, karlmaður um tvítugt, hamaðist á bifreið sinni á plani við Fjölbrautarskólann á Suðurnesjum og ók ítrekað upp á kanta á planinu þar til að hann affelgaði með því annað framdekk bifreiðarinnar. Hann hélt þó áfram að þenja bílinn um stund og láta hann "skransa" á planinu. Maðurinn var kominn út úr bílnum, þegar lögreglan handtók hann og kvaðst ekki hafa ekið. Síðar sá hann svo að sér og viðurkenndi brot sitt. N/A Blog|WrittenBy Karl Einar 22.11.2012 22:50ÓtitlaðDrukkin amma með barnabarn í bílnumÞekkt eru dæmi um foreldra sem aka drukknir eða undir áhrifum fíkniefna með börn sín í bílnum. Lætur nærri að slík mál hafi komið á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstum mánaðarlega á síðasta ári. Fáheyrt er hins vegar að afar og ömmur gerist sek um slíkt dómgreindarleysi, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Í vikunni var kona stöðvuð við umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu, en sú reyndist vera drukkin við stýrið. Konan var ekki einsömul á ferð því með í för var ólögráða barnabarn hennar. Amman var handtekin og flutt á lögreglustöð, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu barnsins og barnaverndaryfirvöld jafnframt upplýst um málið. N/A Blog|WrittenBy Karl Einar
Antal sidvisningar idag: 410 Antal unika besökare idag: 86 Antal sidvisningar igår: 2178 Antal unika besökare igår: 193 Totalt antal sidvisningar: 169238 Antal unika besökare totalt: 26116 Uppdaterat antal: 29.4.2024 17:36:45 |
Arney ökukennsla Namn: Karl Einar ÓskarssonMobilnummer: 847-2514Mejladress: arney@arney.isPostadress: Heiðarhorn 3 KeflavíkTelefonnummer hem: 423-7873Om: Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013Länkar
Arkiv
|
© 2024 123.is | Registrera dig för 123.is | Kontrollpanel