Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja. mbl.is Að sögn Svanbergs voru bæði prófdómarinn og ökuneminn svo hissa á þessu athæfi að þeir stóðu sem steini lostnir og varð svo mikið um að þeim láðist að taka niður bílnúmerið. Því hefur atvikið ekki verið kært til lögreglu. Hann segir að prófdómarinn hafi ekki slasast alvarlega, en verið verulega brugðið. Æpa blótsyrði og fara þétt upp að bílumSvanberg segir að með slíkri óþolinmæði í umferðinni sé síður en svo verið að senda ungum ökumönnum rétt skilaboð. "Það er orðinn stór hópur í umferðinni, bæði karlar og konur, sem sýna óþolinmæði sína og pirring með þessum hætti. Við erum með stóra spegla á prófbílunum og við sjáum stundum að fólk er komið þétt upp við bílinn og maður sér það æpa blótsyrði."En hver gæti verið skýringin á þessu? "Ég held að þetta fylgi þjóðarsálinni og því sem fólk er að ganga í gegnum. Margir eiga erfitt, það brýst út í pirringi sem birtist víða, í netheimum, í slæmri umgengni. Þetta kemur fram alls staðar og umferðin er þar ekki undanskilin." "Við viljum vekja athygli á þessu og vildum gjarnan að reyndari ökumenn væru nýliðunum betri fyrirmynd," segir Svanberg. Anna Lilja Þórisdóttirannalilja@mbl.is "/>

03.09.2012 21:33

Ótitlað

Veittist að prófdómara í ökuprófi

Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja segir pirring í umferðinni út í þá sem ...stækka. Morgunblaðið/Ómar

Í síðustu viku var prófdómari í ökuprófi eltur af karlmanni sem var ósáttur við aksturslag hans og þótti sem stöðvun prófbifreiðarinnar við stöðvunarskyldu hefði tafið för sína allverulega. Maðurinn veittist að prófdómaranum með orðum og sneri að því búnu upp á hönd hans.

"Á undanförnum misserum höfum við orðið meira og meira vör við að mikinn pirring gagnvart þeim sem aka á löglegum hraða og fara eftir umferðarreglum," segir Svanberg Sigurgeirsson, ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja.

"Það hefur verið að síga á ógæfuhliðina að þessu leyti jafnt og þétt. Það er til dæmis algengt að flautað sé þegar ökunemar stoppa við stöðvunarskyldu eða keyra á löglegum hraða. Allt er reynt til að komast fram úr á allan mögulegan og ómögulegan hátt og stundum liggur við stórhættu vegna þess," segir Svanberg.

"En svo keyrði um þverbak í síðustu viku þegar ökumaður bíls elti prófbíl um talsverðan veg fyrir það að hann nam staðar á stöðvunarskyldu, sem hinum fannst vera óþarfa töf. Þegar prófbíllinn var kominn á bílaplan Frumherja vatt ökumaðurinn sér út úr bílnum og veittist að prófdómaranum og spurði hvern andskotann hann væri að þvælast fyrir í umferðinni. Dómarinn útskýrði fyrir honum að hann hefði verið að fara eftir umferðarreglum og rétti fram höndina til að skýra mál sitt. Þá tók maðurinn í höndina á honum, sneri upp á hana, hljóp síðan inn í bíl og rauk á brott."

Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja.

Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja. mbl.is

Að sögn Svanbergs voru bæði prófdómarinn og ökuneminn svo hissa á þessu athæfi að þeir stóðu sem steini lostnir og varð svo mikið um að þeim láðist að taka niður bílnúmerið. Því hefur atvikið ekki verið kært til lögreglu. Hann segir að prófdómarinn hafi ekki slasast alvarlega, en verið verulega brugðið.

Æpa blótsyrði og fara þétt upp að bílum

Svanberg segir að með slíkri óþolinmæði í umferðinni sé síður en svo verið að senda ungum ökumönnum rétt skilaboð. "Það er orðinn stór hópur í umferðinni, bæði karlar og konur, sem sýna óþolinmæði sína og pirring með þessum hætti. Við erum með stóra spegla á prófbílunum og við sjáum stundum að fólk er komið þétt upp við bílinn og maður sér það æpa blótsyrði."

En hver gæti verið skýringin á þessu? "Ég held að þetta fylgi þjóðarsálinni og því sem fólk er að ganga í gegnum. Margir eiga erfitt, það brýst út í pirringi sem birtist víða, í netheimum, í slæmri umgengni. Þetta kemur fram alls staðar og umferðin er þar ekki undanskilin."

"Við viljum vekja athygli á þessu og vildum gjarnan að reyndari ökumenn væru nýliðunum betri fyrirmynd," segir Svanberg.

Flettingar í dag: 119
Gestir í dag: 69
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 54
Samtals flettingar: 173573
Samtals gestir: 27261
Tölur uppfærðar: 16.5.2024 15:36:20

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar