Tekinn á 117 innanbæjar
Átján ára gamall ökumaður var tekinn á 117 km hraða á Selfossi í nótt í götunni Suðurhólum en þar er 50 km hámarkshraði. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð og tekin af honum skýrsla. Hann var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða.
Samkvæmt sektarreikni Umferðarstofu bíður ökumannsins unga 110.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í þrjá mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.
Tekið af mbl.is.