19.07.2010 22:19

Bannað að leggja ökutæki

Bannað að leggja ökutæki - B21.11

Bannað að leggja ökutæki - B21.11

Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að leggja ökutæki. Bannið tekur aðeins til þess vegarhelmings sem merkið er á. Bannið gildir í akstursstefnu frá þeim stað þar sem merkið er og að næstu vegamótum. Ef bannið á ekki að ná að næstu vegamótum má setja upp merki á þeim stað þar sem banninu á að ljúka og þar undir ör sem snýr á móti akstursstefnunni (J01.51 eða J01.52). Ef bannið nær aðeins um skamman veg má nota eitt merki með undirmerki sem tilgreinir fjarlægðina (J02.11). Ef þurfa þykir má árétta bannið með merki eða merkjum innan bannsvæðisins og þar undir örvum sem vísa í báðar áttir (J01.61). Nái bannið aðeins til tiltekinna tegunda ökutækja skal velja undirmerki með upplýsingum um það. Þegar bannað er að leggja ökutækjum á tilteknum dögum eða tilteknum tíma logs eða lengur en t.d. 30 mín. skal letra um það upplýsingar á undirmerki (J06.11 eða J07.11). Merki þetta skal ekki nota þar sem stöðumælar eru en þeir gefa til kynna að heimild til að leggja ökutæki sé takmörkuð við tiltekið tímabil gegn greiðslu. Hér má stöðva til að lesta og afferma enda sé unnið við bifreiðina. Að leggja þýðir að yfirgefa bifreiðina eða bíða í bifreiðinni.

Flettingar í dag: 94
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 54
Samtals flettingar: 173548
Samtals gestir: 27244
Tölur uppfærðar: 16.5.2024 10:26:46

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar