    <language>is</language>
Ótitlað
Ótitlað
      <description>Ætli þetta sé það sem koma skal ? Held ekki !!Vilja banna fátæka ökumennUmferðarteppur í Dúbaí fara í taugarnar á ríku fólkiBjörgvin Ólafssonbilar@dv.isDV 18. febrúar 2014Komið  hefur til tals í Dúbaí að banna fátækari þegnum landsins að nota  þjóðvegina þar. Í Dúbaí má sjá mikið af ofursportbílum og ekki er  óalgeng sjón að sjá þar t.d. yfirgefna Ferra Enzo í vegarkanti. Þar í  landi er lögreglan líka mest á ofurbílum og nú síðast voru þar keyptir  MP4-12C McLaren-bílar fyrir þjóðvegaeftirlit þeirra. Mikið álag á  þjóðvegum og umferðarhnútar hafa leitt til þess að yfirvöld hafa sent  frá sér yfirlýsingu þess efnis að það komi nú til greina að hækka  tryggingar, bensínverð og bifreiðagjöld það hressilega að einungis  virkilega vel efnað fólk hafi efni á að keyra á þjóðvegum landsins. </description>
Ótitlað
      <description>Akstur og notkun farsíma fara ekki saman!</description>
Ótitlað
      <description>Þau gerast varla flóknari hringtorgin !!</description>
Ölvunarakstur
      <description>Ölvunarakstur er dauðans alvara. Endilega horfið á Kastljós frá því í gærkvöldi.Kastljós RUV 16-9-1013</description>
Stundarskrá ÖS
Ótitlað
      <description>Eiginlega skylda að lesa þessa sögu!Jón leit á hraðamælinn áður en hann hægði á sér; 130 á 90 km svæði..fjórða skiptið á jafn mörgum mánuðum.Hvernig var hægt að láta ná sér svona oft?Hann hægði á sér og fór út í kant, en ekk nógu langt og stóð bílinn aðeins út á veginn. Æi, ég leyfi löggunni að hafa áhyggjur af hættunni sem skapast af því að bíllinn sé að hluta inn á veginum. Kannski mun einhver annar bíll skrapa utan í löggubílinn með speglinum..vona það.Lögreglan steig út úr bílnum og nálgaðist bílinn, æi var þetta Gummi úr fótboltanum... Jón lét sig falla ofan í hálsmálið á frakkanum. Þetta var nú verra en að fá sekt, þvílíkt vandræðalegt. Lögga úr hverfinu, að ná manni og mig sem langaði bara að komast heim á skikkanlegum tíma eftir langan dag á skrifstofunni. Maður sem ég ætlaði að spila golf við á morgun.Hann stökk út úr bílnum og ákvað að taka í höndina á þessum manni sem hann hitti á hverri æfingu með strákunum."Hæ Gummi. Gaman að sjá þig.""Sæll Jón." Ekkert bros"Þarna náðirðu mér á slæmu mómenti, bara að flýta mér heim að hitta börnin og konuna þú skilur.""Já, ætli það ekki."Gummi virtist ekki viss. Gott mál."Oh það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni undanfarið. Ég veit ég var kannski að keyra aðeins of hratt, en bara núna sko.""Jónína var búin að minnast á steik og með því í kvöldmatinn. Þú skilur hvað ég meina?"Loksins svaraði Gummi, "Já ég veit hvað þú meinar. Ég veit líka að þú hefur fengið nokkrar sektir undanfarið."Glatað! Þetta virtist ekki vera á réttri leið. Tími kominn til að breyta um aðferð."Hvaða hraða mældirðu mig á?""130, viltu koma og setjast inn í aftursætið á bílnum hjá mér?""Nei bíddu nú rólegur Gummi. Ég leit á mælinn um leið og ég sá þig. Ég var rétt á 105." Það var orðið auðveldara að ljúga með hverri sektinni."Viltu koma hér inn í bílinn Jón, gjörðu svo vel."Pirraður fór Jón í aftursætið á lögreglubílnum. Hann skellti sér aftur í sætið og starði fram fyrir sig. Mínúturnar liðu. Gummi skrifaði eitthvað á blað. Af hverju var hann ekki búinn að biðja mig um ökuskírteinið? Jæja það skipti nú ekki máli hann ætlaði sko ekki að koma nálægt honum á næsta fótboltamóti.Hann hrökk við þegar Gummi stóð upp og opnaði hurðina fyrir honum aftur. Þegar hann stóð upp úr bílnum rétti Gummi honum samanbrotið blað.Jón hrifsaði það úr höndunum á honum. Gummi sagði honum að setjast í bílinn og fara, hann settist sjálfur í lögreglubílinn og gerði sig líklegan að fara.Jón settist upp í bílinn sinn og opnaði blaðið.Það var þó engin sekt. Hvað var þetta? Einhver brandari eða? Jón byrjaði að lesa:Sæll jónEitt sinn átti ég dóttur. Hún var sex ára þegar hún lést í bílslysi. Já, það er rétt hjá þér - vegna ofsaaksturs. Sekt og þriggja mánaða fangelsi var dómurinn svo var maðurinn frjáls. Frjáls til þess að knúsa dætur sínar. Allar þrjár. Ég átti bara eina dóttur og nú þarf ég að bíða eftir að komast til himnaríkis til þess að fá að faðma hana aftur. Ég hef reynt þúsund sinnum að fyrirgefa manninum. Þúsund sinnum hélt ég að mér hefði tekist það. Kannski gerði ég það, en ég þarf að gera það aftur. Enn þann dag í dag. Í guðana bænum farðu varlega. Sonur minn er það eina sem ég á eftir.Kv. GummiJón sneri sér við og sá lögreglubílinn keyra í burtu. Jón starði á eftir honum. 15 mínútum síðar startaði hann bílnum og keyrði af stað, hægt. Hann bað í huganum um fyrirgefningu og faðmaði konuna sína og börnin þegar hann kom heim.</description>
Ótitlað
      <description>  Það sem bíður hjá þessum unga manni er svifting og akstursbann. Sérstakt námskeið og endurupptaka ökuréttinda. Sýnist að kostnaðurinn verði 130.000 kr að lámarki. Hvað þarf kappinn að hafa í tekjur til þess að borga þessa sekt.  Innlent | mbl | 14.6.2013 | 13:33         Var með ökuréttindi í nokkrar mínútur      mbl.is/Júlíus Sigurjónsson   Það var heldur stutt gamanið hjá unga ökumanninum sem lögreglan stöðvaði á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Sá var í sinni allra fyrstu ökuferð, en viðkomandi hafði öðlast ökuréttindi nokkrum mínútum áður en lögreglan stóð hann að hraðakstri.   Bíll ökumannsins mældist á tæplega 120 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 60. Fátt var um svör þegar spurt var um aksturslagið, en vonandi lærir ungi ökumaðurinn sína lexíu og kemur aftur í umferðina sem betri ökumaður. Hann fær nú tíma til að hugsa ráð sitt, en bæði svipting og sekt liggur við hraðakstri af þessu tagi.</description>
Ekki til fyrirmyndar. 
      <description>Þriðji hver stoppaði ekki  Mörg börn áttu leið um gatnamótin      Ritstjórn DVritstjorn@dv.is  19:51 > 26. maí 2013            Starfsmenn VÍS fylgdust nýverið með stöðvunarskyldu á hættulegum gatnamótum. Niðurstaðan var sú að þriðjungur ökumanna stöðvaði ekki og stefndu því fólki í hættu með atferli sínu. Mörg börn áttu leið um gatnamótin og var gangbrautarvörður þeim til aðstoðar. Samkvæmt slysa- og tjónaskráningu VÍS undanfarin fimm ár urðu 9% umferðaróhappa og -slysa þar sem bið-, stöðvunarskylda eða hægri réttur voru ekki virt.</description>
Af mbl.is
      <description>Fleiri banaslys vegna sms sendinga en ölvunaraksturs       AFP  Samkvæmt nýrri rannsókn á vegum Cohen barnaspítalans í New York látast fleiri ungmenni í banaslysum í umferðinni vegna sms sendinga undir stýri en vegna ölvunaraksturs.  Talið er að 3000 ungmenni látist í umferðarslysum á hverju ári í Bandaríkjunum vegna þess að þau eru að senda sms undir stýri. Til samanburðar látast 2.800 vegna ölvunaraksturs. Þá slasast að meðaltali 300 þúsund ungmenni þegar þau senda sms en 282 þúsund slasast vegna ölvunaraksturs.  Ástæðan ku ekki vera sú að hættulegra sé að senda sms undir stýri, heldur gera ungmennin það mun oftar en þau eru drukkin við akstur. Þó rannsóknin hafi aðeins náð til ungmenna má ætla að hún nái jafnframt til þeirra sem eldri eru. Nýleg rannsókn sýnir að nær helmingur ökumanna sendir sms á meðan þeir eru á akstri og er það enn algengara heldur en tíðkast á meðal ungmenna. </description>
Ein sem fer rétt yfir gangbraut.
      <description>05. maí 2013 - 20:15  Mynd dagsins: Löghlýðin rolla í Vestmannaeyjum      Ansi skondið atvik náðist á filmu í Vestmannaeyjum í dag, nánar tiltekið niður við höfnina, en þar urðu nokkrir bæjarbúar varir við einmanna rollu. Kindin var langt frá því að vera til vandræða, enda löghlýðin með eindæmum. Hér að neðan má sjá hvernig rollan trítlaði kurteisislega yfir götuna... og að sjálfsögðu notaði hún gangbrautina!  Myndina tók Eyþór Björgvinsson</description>
Umsögn.
      <description>Er ótrúlega glaður og sáttur með SMS sem ég fékk frá flottum dreng sem var að klára ökunámið. Það hljóðaði svona ! "Heyrðu , vill bara þakka fyrir mig. Það er búið að vera heiður að læra hjá þér meistari. Mun klárlega mæla með þér ef einhver spyr mig Takk fyrir :)  Kveðja Aron" </description>
Ánægjuleg frétt.
      <description>Með samstilltu átaki allra í umferðinni þá getum við lækkað þessar tölur og staðreyndir enn meira.Innlent          | mbl         | 18.4.2013         | 13:20         | Uppfært                      14:02                                   Sögulegur áfangi í umferðarmálum                                                                                                     Færri banaslys urðu árið 2012.         Ómar Óskarsson                                     "Þarna má sjá sögulega áfanga í umferðamálum á Íslandi.  Sérstaklega ef tekið er tillit til fækkunar slysa hjá börnum og  ungmennum. Mig langar samt að undirstrika að við erum að tala um  gríðarlegar fórnir sem eru óásættanlegar. Því megum við ekki gleyma  okkur í gleðinni og það er óásættanlegt þegar slys verða," segir Einar  Magnús Magnússon upplýsingarfulltrúi hjá Umferðastofu. Mikil fækkun banaslysa varð í umferðinni árið 2012. Þá fækkaði einnig  alvarlegum slysum þar sem alvarleg meiðsl urðu á fólki. Þróun  undanfarinna ára sýnir að færri börn og ungmenni hafa látist í  umferðaslysum og að ungir ökumenn valda síður slysum en áður.  Þetta kom  fram í skýrslu sem umferðastofa birti í dag.Sjá frétt á mbl.is hér</description>
Hvar er náungakærleikinn.
      <description>Þetta er ljótt að sjá og alls ekki til fyrirmyndar.  Lögreglan óskar eftir vitnum að árekstri sem varð á bifreiðastæði við Suðurhóla 35e í Breiðholti aðfaranótt sunnudagsins 14. apríl. Þar var ekið á kyrrstæðan R...enault Megane, en sá sem það gerði lét sig hverfa af vettvangi. Bíllinn er mikið skemmdur eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.Þeir sem geta veitt upplýsingar um áreksturinn og/eða tjónvaldinn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum til lögreglunnar hér á fésbókinni. Tjónvaldurinn er jafnframt hvattur til að gefa sig fram.</description>
Stundarskrá ÖS
Slæm hegðun
      <description>    Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á facebókinni.     Það vakti furðu lögreglumanna í kvöld er þeir voru við eftirlit í austurborginni að yfir gatnamót skammt frá þeim var lítilli vespu ekið yfir gatnamótin, gegn rauðu umferðarljósi. Það er svosem ekki frásögu færandi að lögreglumenn verða vitni að umferðarlagabrotum en þetta gerði það samt. Faratækið, litla vespan, hafði... að bera ökumann (13 ára) auk þrjá farþega á sama aldri. Sá sem fremst "sat" var í hnipri undir stýrinu, annar hélt utan um þann farþegann. Þriðji var svo ökumaðurinn og aftan við hann sat fjórði farþeginn og ríghélt sér í ökumanninn. Sá sem aftast sat var sá eini með hjálm. Þéttsetinni vespunni var svo botngefið yfir þessi fjölförnu gatnamót, þar sem umferðarhraði er yfirleitt mikill, gegn rauðu umferðarljósi. Mildi þykir að ekkert kom fyrir. Lögregla stöðvaði háttsemi þeirra og "las þeim pistilinn". Öll börnin voru færð í hendur foreldra og farið yfir málsatvik. Foreldrar þeirra ætluðu í kvöld að fara betur yfir þetta með börnum sínum.</description>
Ótitlað
      <description>Ferðaðist vítt og breytt um landið og svindlaði á bílprófum fyrir aðra  VísirErlent25. mars 2013 21:54           Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.   Norðmenn hafa töluverðar áhyggjur af vaxandi svindli í bílprófum þar í landi meðal annars þegar í ljós kom að þrítugur karlmaður hafði ferðast vítt og breytt um landið til þess eins að taka ökupróf fyrir fólk.Það er Aftenposten sem greinir frá málinu en þar kemur fram að karlmaðurinn hafi vísað fölsuðum skilríkjum og svo tekið prófið. Þetta hafi hann gert að minnsta kosti þrisvar sinnum og hefur nú verið dæmdur fyrir að villa á sér heimildir.Þá séu einnig til dæmi um að einstaklingar svindli með aðstoð tækninnar. Til þess að sporna við þessum vanda eru prófin tekin upp á eftirlitsmyndavél auk þess sem persónuskilríki eru könnuð ítarlega.</description>
Ófærð
      <description>Fyrst fólk fer á annað borð út í ófærðina þá þar að aka eftir aðstæðum og hafa gott bil á milli bíla. Sýnist það hafa ekki verið gert í þessu tilfelli.  20 bíla árekstur í Fossvoginum  Árekstur 20 bíla varð á Hafnarfjarðarvegi, við Fossvog, skömmu eftir klukkan hálfellefu í morgun. Tveir tækjabílar og sjúkrabílar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á leiðinni á vettvang, en einhver slys urðu á fólki.  Ekki er vitað hvort einhver slasaðist alvarlega.  Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er búist við umferðartöfum á þessum slóðum næstu tvær klukkustundirnar af þessum sökum.  Margir hafa fest bíla sína á Hafnarfjarðarveginum og þarna er "gríðarlegt öngþveiti" samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.mbl.is í morgun</description>
Ótitlað
      <description>Mér þykir þetta alltaf jafn skemmtileg sjón ;) Allir svo fínir og vel sjáanlegir NEMA FYRIRMYNDIRNA skyldi maður ætla. Er kannski ekkert kúl að fara í vesti þegar maður er orðinn fullorðinn.... Hvað finnst ykkur....?</description>
Ótitlað
      <description>  Féll 107 sinnum á bílprófinu      Flestir gætu sætt sig við eitt eða tvö föll, en þetta er nú fullmikið af því góða! mbl.is/Júlli   Það er ekki annað hægt en að dáðst að þrautseigjunni, en hversu oft þarf maður eiginlega að falla á bílprófinu til að átta sig á því að maður eigi ekki heima undir stýri?  Á vef breska blaðsins Telegraph segir í gær frá 28 ára gömlum Lundúnabúa sem hefur reynt 107 sinnum að ná skriflega bílprófinu, án árangurs.  Í prófinu þarf að svara 50 krossaspurningum á 57 mínútum og er gerð krafa um 43 rétt svör. Annar hluti prófsins er einskonar hættumatspróf, en í því þarf að svara 44 spurningum réttum af 75.  Ökunemar þurfa að standast báða hluta skriflega prófsins til að mega setjast undir stýri með prófdómara sér við hlið.  Próftökugjaldið er um 6.000 krónur íslenskar svo hinn óheppni, en áhugsami, ökunemi hefur eytt samtals 650.000 krónum í tilraunirnar 107.  Metfjöldi tilrauna í verklega hlutann á fertugur maður frá Stoke on Trent, en 37 tilraunir hans kostuðu hann jafnvirði 450.000 króna. Erfiðið bar þó árangur og hann náði prófinu að lokum.  Talsmaður ökuskóla sagði að hér væri vissulega um óvenjulega margar tilraunir að ræða,  en mikilvægt væri að muna að hver og einn lærir á sínum hraða. Ennfremur sýndi þessi þrautseigja hversu mikilvægt bílprófið væri flestu fólki - það væri áfangi sem fólk kepptist að vegna frelsis og sjálfstæðis sem það hefði í för með sér.</description>
Ökuskírteini
      <description> 21. janúar 2013       Breytingar á reglum er lúta að ökuskírteinum   tóku gildi 19. janúar s.l., sbr. reglugerð nr. 27/2013 um breytingu á reglugerð um ökuskírteini   Gildistími:   Ökuskírteini sem áður voru gefin út til sjötugs verða nú gefin út til 15 ára í senn, þó aldrei lengur en til 70 ára aldurs. Þetta á við um ökuréttindi á fólksbifreið, létt bifhjól, bifhjól og dráttarvél (flokkar B, BE, AM, A1, A2, A og T).Gildistími allra annarra ökuréttindaflokka s.s. stór ökutæki og leigubíla (C1-, C-, D1-, D-, C1E-, CE-, D1E- og DE-flokk) verða áfram 5 ár eins og verið hefur.   Skírteini sem voru í gildi fyrir 19. janúar mun þurfa að endurnýja fyrir 2033, þó svo að gildistími þeirra sé lengri.   Bifhjól:   Nýr flokkur bifhjóla bætist við og aldursskilyrði til að aka stórum bifhjólum breytast:   1. Nýr réttindaflokkur bifhjóla bætist við, A2-flokkur, sem er bifhjól upp í 35kW.   2. Aldursskilyrði fyrir   o A1-flokk breytast ekki, verða áfram 17 ár en aldursskilyrði fyrir   o A2-flokk verður 19 ár.   o A-flokk. Til að öðlast ökuréttindi á aflmeiri bifhjól en A2-flokkur felur í sér þarf annaðhvort   § að hafa tveggja ára reynslu á bifhjól í A2-flokki og því er það í fyrsta lagi 21 árs eða   § að vera orðinn 24 ára.      Reynsla á bifhjól í AM- og A1-flokki telst ekki með í þessari tveggja ára reynslu.           Hér má sjá yfirlit yfir A réttindaflokka, afl hjóla, aldursmörk og önnur skilyrði til að öðlast réttindi. Neðst í hverjum flokki eru talin upp þau önnur réttindi sem fylgja: A       24 ára   21 árs   ef tvö ár meðA2   Öll bifhjól   AM   A1   A2   Þríhjól yfir 15 kW       A2       19 ára   35 kW   ekki yfir 0,2 kW/kg   ekki breytt úr meira en tvölföldu afli   AM   A1       A1       17 ára   11 kW - 125cc   ekki yfir 0,1 kW/kg   AM   þríhjól - 15 kW       AM       15 ára   50cc - 45 km   þríhjól - 45 km </description>
Ökuskóli Suðurnesja
Reiðhjól
      <description>Munum að reiðhjól er ökutæki og hefur sama rétt og aðrir í umferðinni.Endilega horfið á þetta myndband þá sjáið þið hvernig ekki á að haga sér gagnvart hjólreiðarfólki.Virðum hvort annað í umferðinni burt séð frá því hvort við séum gangandi, hjólandi eða akandi.Gefið hjólreiðafólki pláss í umferðinni</description>
Ótitlað
      <description>Þessi frétt er ekki óalgeng.  Eina ráðið til að forðast svona óhöpp er að vera á vel búnum bíl og fara rólega.   Þrjár bílveltur á Reykjanesbraut      Reykjanesbraut. mbl.is/Rax   Enginn slasaðist alvarlega í þremur bílveltum á Reykjanesbraut á fjörutíu mínútum í morgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins varar ökumenn við fljúgandi hálku sem er á veginum.  Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að fyrst hafi verið tilkynnt um bíl utan vegar í Straumsvík. Þrír voru í bílnum en meiðsli þeirra voru aðeins minniháttar.   Sjúkraflutningamenn voru varla komnir í hús þegar næsta tilkynning barst en hún var á sama stað. Einnig voru þrír í þeirri bifreið en enginn slasaðist.  Að lokum barst þriðja tilkynningin um bílveltu en þá var einn í bílnum og komst sjálfur út úr honum. </description>
Ótitlað
Ótitlað
      <description> Víkurfréttir | 11. desember 2012 10:11   Þreyttur ökumaður út í móa    Lögreglunni á Suðurnesjum barst um helgina tilkynning um undarlegt aksturslag á Reykjanesbraut. Þar hefði verið í gangi eins konar svigakstur á vegkaflanum milli Voga og Grindavíkur. Fylgdi sögunni að ökumaðurinn hefði ekið bifreiðinni út af veginum og eitthvert út í móa.  Lögregla hóf þegar að leita bifreiðar og ökumanns og fann hvoru tveggja á vegslóða við Vogana. Ökumaður tjáði lögreglumönnum að hann hefði verið orðinn mjög þreyttur og því farið út af Reykjanesbrautinni til að leggja sig, sem var vitaskuld hið eina rétta í stöðunni.</description>
Ótitlað
      <description>  Hvenær ætlar Reykjanesbær að fjarlægja þessa slysagildrur af hringtorgunum.        Víkurfréttir | 10. desember 2012 11:06   Endaði uppi á miðju hringtorgi  Ökumaður fólksbifreiðar endaði för sína uppi á miðju hringtorgi við Bolafót í Njarðvík í morgun. Ekki er vitað hver ástæðan var fyrir því að bíllinn endaði uppi á hringtorginu en hann stöðvaðist á stóru grjóti skammt frá vörðunni sem þar er. Ekki var hálka á vegum þegar óhappið varð.  Flutningabíll var kallaður á staðinn til að koma bílnum af vettvangi. Ekki urðu nein slys á fólki.    -  </description>
Ótitlað
      <description>   Mynd úr safni. Fréttir | 27. nóvember 2012 12:45   Hrina umferðaróhappa í hálkunni  Mörg umferðaróhöpp hafa orðið á Suðurnesjum á undanförnum dögum, sem flest hafa orðið vegna hálku. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Grindavíkurvegi með þeim afleiðingum að hún hafnaði skilti utan vegar. Önnur bifreið hafnaði á kantsteini af sömu sökum og urðu skemmdir á hjólabúnaði hennar.  Á Reykjanesbraut missti ökumaður stjórn á bifreið sinni vegna hálku og hafnaði bifreiðin utan vegar eftir að hafa rekist utan í aðra bifreið. Fjórðu bifreiðinni var ekið á ljósastaur á Grænásvegi. Auk þessa varð minni háttar árekstur í Njarðvík í gær og tilkynnt var til lögreglu um skemmdir á bifreið eftir að ekið hafði verið utan í hana. Sá sem þeim olli lét sig hverfa af vettvangi.</description>
Ótitlað
      <description>Nú er úti eðal aðstæður fyrir hálku!Endilega horfa á þetta myndband </description>
Ótitlað
      <description>Innlent | mbl | 23.11.2012 | 15:10         Ungir ökumenn undir áhrifum fíkniefna      AFP   Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn um tvítugt vegna gruns að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Annar ökumannanna, kona sem handtekin var í gær, reyndist vera með tóbaksblandað kannabis í bílnum. Við húsleit heima hjá henni fannst meira af tóbaksblönduðu kannabisefni.  Hinn ökumaðurinn, karlmaður um tvítugt, hamaðist á bifreið sinni á plani við Fjölbrautarskólann á Suðurnesjum og ók ítrekað upp á kanta á planinu þar til að hann affelgaði með því annað framdekk bifreiðarinnar. Hann hélt þó áfram að þenja bílinn um stund og láta hann "skransa" á planinu. Maðurinn var kominn út úr bílnum, þegar lögreglan handtók hann og kvaðst ekki hafa ekið. Síðar sá hann svo að sér og viðurkenndi brot sitt.</description>
Ótitlað
      <description>Ungir ökumenn á réttri leið      Umferðarslysum sem ungir ökumenn eiga aðild að hefur fækkað. AFP linkur á frétt</description>
Ótitlað
      <description>Drukkin amma með barnabarn í bílnum      mbl.is/Ernir Eyjólfsson   Þekkt eru dæmi um foreldra sem aka drukknir eða undir áhrifum fíkniefna með börn sín í bílnum. Lætur nærri að slík mál hafi komið á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstum mánaðarlega á síðasta ári.   Fáheyrt er hins vegar að afar og ömmur gerist sek um slíkt dómgreindarleysi, en svo bregðast krosstré sem önnur tré. Í vikunni var kona stöðvuð við umferðareftirlit á höfuðborgarsvæðinu, en sú reyndist vera drukkin við stýrið.   Konan var ekki einsömul á ferð því með í för var ólögráða barnabarn hennar. Amman var handtekin og flutt á lögreglustöð, en gerðar voru viðeigandi ráðstafanir í þágu barnsins og barnaverndaryfirvöld jafnframt upplýst um málið. </description>
ökuskóli
      <description>Námskrá Ökuskóla Suðurnesja fyrir haustið 2012</description>
Ótitlað
      <description>Veittist að prófdómara í ökuprófi    . Morgunblaðið/Ómar  Í síðustu viku var prófdómari í ökuprófi eltur af karlmanni sem var ósáttur við aksturslag hans og þótti sem stöðvun prófbifreiðarinnar við stöðvunarskyldu hefði tafið för sína allverulega. Maðurinn veittist að prófdómaranum með orðum og sneri að því búnu upp á hönd hans."Á undanförnum misserum höfum við orðið meira og meira vör við að mikinn pirring gagnvart þeim sem aka á löglegum hraða og fara eftir umferðarreglum," segir Svanberg Sigurgeirsson, ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja.  "Það hefur verið að síga á ógæfuhliðina að þessu leyti jafnt og þétt. Það er til dæmis algengt að flautað sé þegar ökunemar stoppa við stöðvunarskyldu eða keyra á löglegum hraða. Allt er reynt til að komast fram úr á allan mögulegan og ómögulegan hátt og stundum liggur við stórhættu vegna þess," segir Svanberg."En svo keyrði um þverbak í síðustu viku þegar ökumaður bíls elti prófbíl um talsverðan veg fyrir það að hann nam staðar á stöðvunarskyldu, sem hinum fannst vera óþarfa töf. Þegar prófbíllinn var kominn á bílaplan Frumherja vatt ökumaðurinn sér út úr bílnum og veittist að prófdómaranum og spurði hvern andskotann hann væri að þvælast fyrir í umferðinni. Dómarinn útskýrði fyrir honum að hann hefði verið að fara eftir umferðarreglum og rétti fram höndina til að skýra mál sitt. Þá tók maðurinn í höndina á honum, sneri upp á hana, hljóp síðan inn í bíl og rauk á brott."  mbl.is" href="http://www.mbl.is/frimg/6/29/629646.jpg" rel=newsimgs target=_blank>   Svanberg Sigurgeirsson ökukennari og sviðsstjóri ökuprófasviðs Frumherja. mbl.is  Að sögn Svanbergs voru bæði prófdómarinn og ökuneminn svo hissa á þessu athæfi að þeir stóðu sem steini lostnir og varð svo mikið um að þeim láðist að taka niður bílnúmerið. Því hefur atvikið ekki verið kært til lögreglu. Hann segir að prófdómarinn hafi ekki slasast alvarlega, en verið verulega brugðið.  Æpa blótsyrði og fara þétt upp að bílumSvanberg segir að með slíkri óþolinmæði í umferðinni sé síður en svo verið að senda ungum ökumönnum rétt skilaboð. "Það er orðinn stór hópur í umferðinni, bæði karlar og konur, sem sýna óþolinmæði sína og pirring með þessum hætti. Við erum með stóra spegla á prófbílunum og við sjáum stundum að fólk er komið þétt upp við bílinn og maður sér það æpa blótsyrði."En hver gæti verið skýringin á þessu? "Ég held að þetta fylgi þjóðarsálinni og því sem fólk er að ganga í gegnum. Margir eiga erfitt, það brýst út í pirringi sem birtist víða, í netheimum, í slæmri umgengni. Þetta kemur fram alls staðar og umferðin er þar ekki undanskilin."  "Við viljum vekja athygli á þessu og vildum gjarnan að reyndari ökumenn væru nýliðunum betri fyrirmynd," segir Svanberg.      Anna Lilja Þórisdóttirannalilja@mbl.is  </description>
Bil milli bíla.
      <description>Segir allt sem segja þarf.....VÍS auglýsing...</description>
Ótitlað
íslenskur veruleiki
      <description>Þetta er íslenskur veruleiki og algerlega óásættanleg hegðun....myndir venni bergsmynd Hannes Sigurgeirsson.</description>
Skrítið
      <description>Furðuleg forgangsröðun.Kona ein var stoppuð af umferðarlögreglunni í Colorado í Bandaríkjum. Furðu vakti að bensín brúsi var beltaður í barnabílstólinn en barnið laust. Algerlega óásættanlegt....Frétti öll.</description>
Umferðaróhapp
      <description>Alveg ótrúlegar aðstæður í þessu umferðarslysi. Barnabílstóllinn bjargaði ungabarninuLinkur á frétt hér.</description>
Ótitlað
      <description>Eins gott að passa sig í Hafnarfirði.... Mynd: Reynir Kristjánsson</description>
Ótitlað
      <description>Hvar er virðingin við barnið og umhverfið mjög sláandi athægi.....Fréttir | 22. maí 2012 | 16:46:30   Móðirin í símanum á meðan barnið hékk út um gluggann  Lögreglan á Suðurnesjum veitti í gær athygli bifreið sem ekið var um götur í umdæminu. Stúlkubarn, sem augljóslega var ekki í bílbelti, hékk út um afturglugga bílsins, en móðirin, sem ók honum var að tala í farsíma og veitti barninu ekki athygli. Lögreglan gaf henni merki um að stöðva bifreiðina, en hún tók ekki eftir því sökum anna í símanum. Þegar móðirin varð lögreglu loks vör átti hún í erfiðleikum með að stöðva bifreiðina þar sem síminn virtist enn trufla hana. Það hafðist á endanum og gerði lögregla þá konunni grein fyrir alvarleika þessa athæfis og tjáði henni að lögregluskýrsla yrði gerð um málið.Mynd úr safni.</description>
Ótitlað
      <description>Þegar ekið er framúr bifreið skal hafa það í huga þegar ekið er fram fyrir bifreiðina skal hafa nægjanlegt bil á milli. Ekki aka í veg fyrir bifreiðina sem ekið er framúr fyrr en þið sjáið hana í hliðarspegli en þó helst í baksýnisspegli. Það er allt of algengt að fólk sneiði rétt hjá vinstra framhorni bifreiðarinnar sem framúr var ekið. MUNIÐ AÐ HAFA ALLTAF NÆGJANLEGT BIL Á MILLI BIFREIÐA.. 3 SEK</description>
Ökuskóli Suðurnesja
      <description>          Næstu námskeið verða eftirfarandi.             Ö-1    Mánudaginn                21.  maí.   kl. 19:00, til kl. 22:00                Þriðjudaginn                22.  maí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                Fimmtudaginn             24.  maí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                                        Ö-2    Mánudaginn                   4.  júní.  kl. 19:00, til kl. 22:00                                          Þriðjudaginn                   5.  júní.  kl. 19:00, til kl. 22:00                Fimmtudaginn                7.  júní.   kl. 19:00, til kl. 22:00                                   Ö-1    Mánudaginn                 18.  júní.   kl. 19:00, til kl. 22:00                Þriðjudaginn                 19.  júní.  kl. 19:00, til kl. 22:00                Fimmtudaginn              21.  júní.  kl.  19:00 til kl. 22:00                                   Ö-2     Mánudaginn                 2.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                      Þriðjudaginn                  3.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                  Fimmtudaginn               5.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                                        Ö-1    Mánudaginn                 16.  júlí.   kl. 19:00, til kl. 22:00             Þriðjudaginn                 17.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                     Fimmtudaginn              19.  júlí.   kl. 19:00, til kl. 22:00                                Ö-2    Mánudaginn                30.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                     Þriðjudaginn                31.  júlí.  kl. 19:00, til kl. 22:00                ATH !    Miðvikudaginn             1.  ágúst.  kl. 19:00, til kl. 22:00                          </description>
Ótitlað
      <description>VF Fréttir | 2. maí 2012 | 01:24:55   Tekinn á 160 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni - sektin 140 þúsund  Lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu í dag ökumann sem ók bifreið sinni á 163 km/klst hraða á Reykjanesbraut en þar er hámarkshraði 90 km/klst. Samkvæmt reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum er sektarfjárhæðin við broti ökumannsins 140.000 krónur.</description>
Ótitlað
      <description>Er þetta fyrirsögnin á ferðamannabæklingum sem við íslendingar viljum sjá."Ísland - landið þar sem þú upplifir spennuna - í ám, á eldfjöllum - og vissulega í umferðinni!!"Dani skammar Íslendinga - gefið stefnuljós (visir.is)</description>
Náungakærleikur
      <description>Þessi hegðun er óásættanleg hvar er náungakærleikurinn?  Innlent | mbl | 12.4.2012 | 13:23   Ók rakleiðis af vettvangi slyss    mbl.is/Júlíus Sigurjónsson" href="http://mbl.is/frimg/5/71/571294.jpg" rel=newsimgs target=_blank jQuery17106853100443444045="13">    mbl.is/Júlíus Sigurjónsson   Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Reykjavík um ellefuleytið að kvöldi páskadags, sunnudaginn 8. apríl. Þar var svartri BMW-bifreið ekið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á hjólinu, ók á vegkant og kastaðist síðan af því. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.  Bæði ökutækin voru á norðurleið, rétt sunnan Breiðholtsbrautar, þegar slysið varð. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is   Ökumaður BMW-bifreiðarinnar er sérstaklega hvattur til að gefa sig fram en hann ók rakleiðis af vettvangi.</description>
Umferðarmerki
      <description>Umferðarmerki fyrir blinda ökumenn !!</description>
Verðbreyting
      <description>Frá Frumherja hf.Ný verðskrá fyrir ökupróf tekur gildi 10 apríl n.k. Breytingin kemur til vegna hækkunar á neysluvísitölu síðustu 12 mánuði og nemur hækkunin 6,4%. Innifalin eru umsýslugjöld US, 800 kr. skrifleg og 1.600 kr. verkleg.   Bóklegt próf fer úr 2.900kr í 3.000 kr  Verklegt próf fer úr 8.000kr ís 8.400krVerðskráin tekur gildi þann 10. apríl n.k. </description>
Öryggisbelti
      <description>Innlent | mbl | 4.4.2012 | 16:32   Margir óku án bílbeltis  Þótt mikilvægi bílbelta sé flestum ljóst eru enn margir sem hirða ekki um að nota þennan sjálfsagða öryggisbúnað, segir í frétt á vefsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gögn sýna að líkurnar á því að slasast í umferðinni eru margfalt meiri meðal þeirra sem nota ekki bílbelti. Þetta er rifjað upp því í gær og fyrradag stöðvaði lögreglan nokkra tugi ökumanna sem notuðu ekki bílbelti. Hinir sömu eiga 10.000 kr. sekt yfir höfði sér, sem er reyndar aukaatriði. Aðalmálið er að ökumenn spenni alltaf beltin.   Þrír þessara ökumanna voru jafnframt með barn í bílnum en í öllum tilvikum var öryggisbúnaði þeirra áfátt. Yngsta barnið var í barnabílstól sem var laus í bílnum en ökumaðurinn reyndist ennfremur sviptur ökuleyfi. Bíll hans var kyrrsettur en hinum ökumönnunum tveimur var leyft að halda för sinn áfram eftir að viðeigandi ráðstafanir höfðu verið gerðar. Barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um málin.</description>
Ungir ökumenn.
      <description>Ungir ökumenn eru að jafnaði sakaðir um að vera þeir vestu í umferðinniEndilega lesið þessa frétt og sjáið aldurinn á ökumönnunum.  Innlent | mbl | 4.4.2012 | 16:08   Fimm sviptir ökuréttindum    " href="http://mbl.is/frimg/5/42/542577.jpg" rel=newsimgs target=_blank jQuery171011449919990213153="13">    Frá Suðurgötu.   Fimm ökumenn voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða í gær og fyrradag en þeir voru allir staðnir að hraðakstri á Suðurgötu við Skothúsveg í Reykjavík. Bílar fimmmenninganna mældust á 66-70 km hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Ökumennirnir, fjórir karlar og ein kona, eru á aldrinum 37-62 ára.</description>