Urðu sér til skammar á ljósanótt.
Ég fylgdist með því er mótorhjól og bílar óku niður Hafnargötuna hér í Keflavík. Ekið er að venju innan um áhorfendur sem oft á tíðum eru mjög nálægt ökutækjunum. Verð ég að segja að þetta er frábært og afskaplega skemmtilegt. En í ár urðu nokkrir ökumenn á nýlegum sportbílum sér til skammar. Þeir þöndu og reykspóluðu innan um mannfjöldann.
Hvað ef ?
1. Flygsur af gúmi hefði þeyst af dekkinu í áhorfendur.
2. Aðskotahlutur á götunni hefði lent undir dekkinu og kastast í áhorfendur.
3. Hella hefði losnað og kastast í áhorfendur.
4. Ökutækið hefði fengið skyndilega gott grip.
5. Ökumaðurinn hefði misst fótinn af bremsupetalanum.
6. Bremsukerfið hefði gefið sig.
Ég skora á viðkomandi að skoða hug sinn og einnig stjórnir þeirra félaga sem taka þátt í þessum skemmtilega viðburði að setja öryggisreglur.