20.07.2010 10:16

Börn í framsæti.

Tekið af visir.is

Umferðarstofa: 20 börn í lífshættu við leikskóla

Umferðarstofa: 20 börn í lífshættu við leikskóla

Í nýlegri könnun Umferðarstofu og Slysavarnafélagsins Landsbjargar þar sem gerð var athugun á öryggi barna í bílum við 75 leikskóla kom m.a. fram að 20 börn reyndust í lífshættu.

Ástæðan var að foreldrar og/eða forráðamenn barnanna höfðu sett þau í framsæti fyrir framan virkan öryggispúða. 13 þessara barna voru í bílbelti en 3 voru laus.

Í tilkynningu frá Umferðarstofu segir að barn sem er lægra en 150 sm. á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.

Eins mikilvægur og loftpúði í mælaborði getur verið fyrir öryggi fullorðinna þá getur hann reynst stórhættulegur fyrir börn sem eru smærri en 150 sm. Barnið hefur ekki náð nægjanlegum líkamlegum styrk og stoðkerfi þess hefur ekki náð þeim þroska að geta þolað höggið sem púðinn getur veitt. Púðinn springur út á hraða sem nemur u.þ.b. 300km/klst. og hann getur auðveldlega banað barninu hvort sem það er í barnabílstól eða með annan viðeigandi öryggisbúnað.

Það er því öruggara að barnið sé haft í viðeigandi öryggisbúnaði í aftursæti nema tryggt sé að ekki sé uppblásanlegur öryggispúði framan við það í framsæti.

Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 166
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 165763
Samtals gestir: 25580
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 08:27:20

Arney ökukennsla

Nafn:

Karl Einar Óskarsson

Farsími:

847-2514

Heimilisfang:

Heiðarhorn 3 Keflavík

Heimasími:

423-7873

Um:

Tek að mér ökukennslu í réttindaflokki B ( bifreið ). Kenni á Toyota Auris 2013

Tenglar